TRÚNAÐARYFIRLÝSINGAR

Við tökum persónuvernd og friðhelgi einstaklinga mjög alvarlega. Þessi trúnaðaryfirlýsing útlistar hvernig upplýsingum er safnað við notkun þessarar vefsíðu, hvernig upplýsingarnar eru geymdar og hvernig þær eru nýttar. Við notum IP-tölur notenda til að greina vandamál á vefþjónum okkar og hafa umsjón með vefsíðum okkar.

Gagnasöfnun

Þegar þú notar þennan vef verða til upplýsingar um heimsóknina. Klasi miðlar þeim ekki til annarra nema samkvæmt lagaskyldu til eftirlitsaðila.

Vafrakökur

Vafrakökur (e. cookies) eru notaðar til að telja heimsóknir á vefinn og til að þekkja aftur fyrri notendur. Klasi notar vafrakökur sparlega og af ábyrgð. Notendur geta sjálfir stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim alfarið.

Klasi notar ýmis greiningartól til vefmælinga. Í hvert sinn sem vefurinn er heimsóttur eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning heimsóknar, leitarorð sem notuð eru til að finna vefinn, frá hvaða vef er komið og gerð bæði vafra og stýrikerfis þess sem heimsækir vefinn. Upplýsingarnar sem safnað er eru notaðar til að þróa og bæta vefinn svo hann verði aðgengilegri og þægilegri í notkun. Engum öðrum upplýsingum um hverja komu er safnað. Upplýsingarnar sem safnað er eru ekki tengdar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

SSL skilríki

Vefurinn notast við svokölluð SSL-skilríki. Það þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag sem gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

SSL skilríki koma í veg fyrir það að þriðji aðili komist yfir gögn, s.s. lykilorð, sem send eru í gegnum vefinn. Upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara eru dulkóðaðar með SSL skilríkjunum. Þannig skila gögnin sem flutt eru á milli sér á öruggan og réttan máta.

Skráðir notendur

Notendur geta skráð sig á póstlista hjá Klasa. Netföngin eru vistuð hjá Klasa og eru einungis vistuð í þeim tilgangi að senda út upplýsingar og sölugögn um 201 Smára til þeirra sem skrá sig á listann. Neðst í hverjum pósti sem sendur er út til notenda er tengill sem hægt er að smella á til að segja sig úr áskrift.

Aðrir vefir

Reglur Klasa um öryggi notenda gilda ekki á vefjum utan hans. Vefir sem vísað er í af vef Klasa eru utan ábyrgðar Klasa.

Hægt er að hafa samband í gegnum klasi@klasi.is til að gera athugasemdir eða fá frekari upplýsingar.